Úthlutun úr Menningarsjóði KS
Í dag bauð Menningarsjóður Kaupfélags Skagfirðinga á sinn fund fulltrúa 17 verkefna sem sóttu um styrki til sjóðsins sem árlega hefur lagt ýmiss konar menningarstarfsemi í héraðinu lið með fjárstuðningi sínum. Sem fyrr er það sönglistin sem er fyrirferðamikil að þessu sinni en alls eru sex aðilar sem sóttu um styrk til tónleikahalds eða útgáfustarfsemi.
Athöfnin fór fram á skrifstofu félagsins að Ártorgi 1 en auk þeirra fulltúa sem áttu þess kost að mæta voru stjórnarmenn sjóðsins og aðstoðarkaupfélagsstjóri viðstaddir. Menningarsjóður KS hefur starfað allt frá árinu 1962 er fyrsti fundur sjóðstjórnar var haldinn þ. 14. apríl það ár.
Eftirtaldir aðilar hlutu styrki að þessu sinni:
Menningarsjóður KS úthlutar Skottu kvikmyndafjelagi styrk vegna sjónvarpsþátta sem allir eiga það sameiginlegt að tengist mannlífi og atvinnulífi í Skagafirði.
Menningarsjóður KS úthlutar Skíðadeild Tindastóls styrk vegna uppbyggingar á aðstöðu og búnaði fyrir fatlaða á skíðasvæðinu í Tindastóli.
Menningarsjóður KS úthlutar Sögufélagi Borgarfjarðar styrk vegna endurbóta og viðauka á Borgfirskum æviskrám.
Menningarsjóður KS úthlutar Jóhanni Má styrk vegna útgáfu á geisladisk.
Menningarsjóður KS veitir Náttúrustofu Norðurlands vestra styrk vegna byggingu á fuglaskoðunarhúsi við Tjarnartjörn.
- 6. Leikfélag Sauðárkróks
Menningarsjóður KS veitir Leikfélagi Sauðárkróks styrk vegna starfsemi félagsins.
Menningarsjóður veitir Ágústi Brynjari Eiðssyni styrk vegna myndlistar.
Menningarsjóður KS veitir fjárstuðning til styrktar útgáfu á geisladiski með lögum Erlu Þorsteinsdóttur.
Menningarsjóður KS úthlutar félaginu Á Sturlungaslóð í Skagafirði styrk vegna uppbyggingar á áningastöðum fyrir heimamenn og ferðafólk á sögufrægum stöðum í Skagafirði sem tengjast Sturlungaöldinni.
10.Áhugahópur um skáldkonuna Guðrúnu frá Lundi
Menningarsjóður KS styrkir Áhugahóp um skáldkonuna Guðrúnu frá Lundi vegna málþings til heiðurs Guðrúnu frá Lundi og öðrum skagfirskum skáldum.
11. Dagrún Ísabella Leifsdóttir
Menningarsjóður KS veitir Dagrúnu Ísabellu Leifsdóttur styrk vegna tónleika Mucic Women.
Menningarsjóður KS veitir Helgu Rós Indriðadóttur styrk vegna verkefnisins Óperutöfrar.
Menningarsjóður KS veitir Hóladómkirkju styrk vegna sumardagskrár kirkjunnar.
14. Vígslubiskup Hólastiftis
Menningarsjóður KS veitir barna- og æskulýðsstarfi kirkjunnar á félagssvæðinu styrk.
15. Ferðamáladeild Háskólans á Hólum
Menningarsjóður KS veitir Ferðamáladeild Háskólans á Hólum styrk til gerðar göngukorts af Tröllaskaga.
Menningarsjóður KS veitir Raggmann ehf.fjárstuðning vegna Gæru tónlistarhátíðar.
Menningarsjóður KS veitir Snorra Evertssyni styrk vegna útgáfu á geisladiski.