Útileikir drengjaflokks og aflýstar æfingar
Drengjaflokkur körfuknattleiksdeilar Tindastóls spilar tvo útileiki um helgina en allar æfingar hjá körfuknattleiksdeild Tindastóls hafa verið aflýstar um helgina vegna bikarúrslitaleiks Tindastóls og Keflavíkur.
Þar sem flestir ef ekki allir þjálfarar verða í burtu og afleysingafólk er af skornum skammti af sömu ástæðum var sú ákvörðun tekin í unglingaráði hafa engar æfingar um helgina, hvorki á laugardag né sunnudag. Þetta þýðir að míkróboltaæfing fellur niður og sömuleiðis körfuboltaskóli á sunnudag.
Drengjaflokkurinn spila tvo útileiki á föstudag og laugardag en samkvæmt heimasíðu Tindastóls ætla strákarnir ekki að taka sér frí þrátt fyrir bikarúrslitaleikinn.
Strákarnir spila við Valsmenn á föstudag kl. 18.15 og við Njarðvíkinga á laugardag kl. 11.00.