Útisigur í hörkufótboltaleik á Dalvík

Leikmenn Tindastóls/Hvatar gerðu heldur betur góða ferð á Dalvík í gær en þá mættu þeir Dalvík/Reyni í 2.deildinni. Fyrir leikinn var Dalvík/Reynir með 11 stig en gestirnir 10 stig og því var von á miklum báráttuleik. Síðasti „alvöru“ leikur þessara liða var úrlsitlaleikur um gullið í 3.deildinni í september í fyrra en sá leikur var leikinn á Ólafsfirði og endaði með sigri Tindastóls 1-0. Í þeim leik skoraði Arnar Sigurðsson sigurmarkið fyrir Tindastól.

Í gær voru fínar aðstæður á Dalvík. Sól og nánast logn en lofthitinn var hinsvegar ekki mikill en engu að síður bestu aðstæðurnar sem sést hafa það sem af er sumri. Fjölmargir áhorfendur voru mættir á völlinn og töluverður hluti þeirra á bandi gestanna. Sérstakur stuðningsmannahópur Tindastóls/Hvatar var mættur og kæfði heimamenn algerlega og studdi gestina alla leið og eiga þeir sannarlega hlut í þessum sigri.

Dalvík/Reynir byrjaði betur og komst í 2-0 í fyrri hálfleik. Þetta var staða sem var alls ekki eftir gangi leiksins en það eru mörkin sem telja eins og alltaf.

Í upphafi síðari hálfleiks skoraði Bjarki Már fyrsta mark Tindastóls/Hvatar og síðan jafnaði Ingvi Hrannar leikinn eftir að hafa fengið frábæra sendingu frá Atla Arnarsyni. Dómari leiksins dæmdi síðan víti sem var mjög vafasamt og úr því skoraði leikmaður heimamanna og kom þeim í vænlega stöðu 3-2.

En leikmenn Tindastóls/Hvatar voru ekki búnir að gefast upp og aftur skoraði baráttujaxlinn Bjarki Már og jafnaði leikinn í 3 – 3.

Það var síðan Arnar Sigurðsson sem skoraði sigurmarkið í uppbótartíma og tryggði góðan 3 – 4 útisigur.

Lið Tindastóls/Hvatar stóð sig vel í leiknum og leikmenn voru staðráðnir allan tímann að fara heim með 3 stig. Frammistaða Bjarka og Arnars Skúla var frábær í leiknum en allir aðrir eiga hrós skilið fyrir vel unnið verk.

Næsti leikur er nk. þriðjudag þegar KF ( Siglfirðingar og Ólafsfirðingar koma í heimsókn á Krókinn ).

Fleiri fréttir