Útlit fyrir metár hjá Kjötafurðarstöð KS

Nú er síðasta sláturvikan hjá Kjötafurðarstöð KS og er útlit fyrir að met verði slegið í ár hvað varðar fjölda. Síðasti sláturdagur verður þann 28. október.

Fram kemur á heimasíðu KS að nú hafa yfir 100 þúsund fjár verið slátrað á þeim sjö vikum sem liðnar eru af sláturtíð en til samanburðar var slátrað 109 þúsund fjár í sjálfri sláturtíðinni í fyrra en 110.512 yfir allt árið 2010. Meðalþyngd dilka er 15,85 kg.

Fleiri fréttir