Útselskópar með gervihnattasenda

Starfsmenn Selasetursins koma fyrir gervihnattasendum á útselskópum. Mynd: Selasetur.is.
Starfsmenn Selasetursins koma fyrir gervihnattasendum á útselskópum. Mynd: Selasetur.is.

Á vef Selasetursins er sagt frá því að starfsmenn hafi nýlega lagt leið sýna á Strandir í þeim tilgangi að koma fyrir gervihnattasendum á útselskópum. Eiga sendarnir að gefa upplýsingar um hegðun selanna og hvort þeir ferðist milli svæða eða landa.

Í pistli sem Jóhann Garðar Þorbjörnsson skrifar á vef Selasetursins segir að útselurinn haldi sig, rétt eins og nafnið gefur til kynna, utar eða fjarri mannabyggðum og kunni helst við sig á einmannalegu útskerjum, umkringdum köldu hafi. „Síðastliðna áratugi hefur fækkað mikið í stofnum beggja tegunda. Það er því sérstaklega mikilvægt að leggjast í rannsóknir svo hægt sé að meta hvað kann að valda þeirri hnignun,“ segir m.a. í pistlinum.

Starfsmenn Selasetursins héldu upp frá Hvammstanga á dögunum, og var stefnan sett á heimkynni nokkurra stærri útselslátra landsins, við Drangaskörð, Meyjarsel og Skaufasel. Þar voru nýlega útselskópar, sem þó hafa misst fósturhárin, merktir. Þeim far svo sleppt og næsta árið munu merkin reglulega gefa upplýsingar um staðsetningu þeirra.

Fleiri fréttir