Útskrift Ársala 2013

Nú er tími útskrifta enda alltaf stór áfangi að klára skólann sinn. Föstudaginn 31.maí sl. útskrifuðust 34 glöð og fjörug börn sem voru í skólahóp í leikskólanum Ársölum á Sauðárkróki í vetur og við tekur grunnskóli á hausti komanda. Flest barnanna voru viðstödd útskriftina auk foreldra, starfsmanna skólahóps og annarra gesta.

Athöfnin hófst með tónlistarflutningi barnanna þar sem þau fluttu nokkur lög. Þá afhenti Anna Jóna Guðmundsdóttir leikskólastjóri öllum börnunum kveðjuskírteini og rós.

Í kveðjuorðum sínum til barnanna þakkaði hún þeim góða og skemmtilega samveru og bað þau um að muna að æfingin skapar meistarann. Þau þyrftu að vera dugleg að æfa sig áfram í að vera góð við hvert annað og hvatti þau til að vera alltaf vinir.

Að lokum var öllum viðstöddum boðið í kaffi, djús og tertur inni í Skógum og Þúfu og virtust allir njóta veitinganna og hafa gaman af.

Hér fyrir neðan eru myndir sem við fengum sendar frá leikskólanum.

.

Fleiri fréttir