Útsvarslið á spjald sögunnar
Búið er að manna lið Skagafjarðar í Útsvari þennan veturinn en fyrsti þáttur í nýrri þáttaröð hefst í kvöld, þar sem liðsmenn Árborgar munu etja kappi við hornfirðinga.
Lið skagfirðinga og borgarbyggðar munu komast á spjald sögunnar þar sem keppnisliðin eru skipuð þremur konum og er þetta í fyrsta sinn, í fimm ára sögu Útsvars, sem kvennalið þreytir keppni, hvað þá tvenn lið.
Í liði skagfirðinga eru Guðrún Helgadóttir prófessor við Háskólann á Hólum, Guðrún Rögnvaldardóttir framkvæmdarstjóri hjá Staðlaráði og Erla Björt Björnsdóttir háskólanemi.
Kvennalið Skagafjarðar mun að öllum líkindum hefja leik þann 21. október.