Útvarp Hvammstangi komið í loftið
Útvarp Hvammstangi FM 103,7 fór í loftið í gær en það er starfrækt í tengslum við unglistahátíðina Eldur í Húnaþingi. Formleg dagskrá útvarpsins hefst þó ekki fyrr en á morgun en Eldurinn mun verða tendraður þá.
Útvarpsstöðin hefur aðsetur á skrifstofu USVH að Höfðabraut 6 á Hvammstanga á meðan útvarpið er starfsrækt. Norðanáttin segir frá því að hægt sé að biðja um óskalög í síma 451-2760 eða með því að senda beiðni á Fésbókarsíðu útvarpsins sem er að finna HÉR.
Hægt er að fylgjast með útvarpinu á netinu með því að smella HÉR.