Vera og vatnið í Ásbyrgi um páskana
Grímuverðlaunasýningin Vera og vatnið verður í Ásbyrgi á Laugarbakka laugardaginn 15. apríl kl. 14:00.
Vera og vatnið er barnasýning eftir hópinn Bíbí & Blaka um veruna Veru þar sem fylgst er með tilraunum hennar og upplifunum í veðri og vindum. Sýningin, sem er 25 mínútur að lengd, er ætluð börnum á aldrinum eins til sjö ára, og fjölskyldum þeirra. Við sýningartíma bætist leikstund þar sem börnin fá að skoða leikmyndina og hitta veruna Veru.
Bíbí og blaka er fyrsti íslenski danshópurinn sem einbeitir sér að því að vinna dansverk fyrir börn. Fyrri sýningar hópsins, Skýjaborg og Fetta Bretta, hafa hlotið einróma lof gagnrýnenda. Sýningin Skýjaborg hlaut m.a. Menningarverðlaun DV og samtals fimm tilnefningar til sviðslistaverðlauna Grímunnar. Sýningarnar hafa nú verið sýndar hátt í 100 sinnum í leikhúsum og leikskólum hérlendis, sem og erlendis.
Höfundar: Bíbí & blaka hópurinn.
Dans: Tinna Grétarsdóttir.
Flutningur: Snædís Lilja Ingadóttir.
Tónlist: Sólrún Sumarliðadóttir.
Sviðsmynd og búningar: Guðný Hrund Sigurðardóttir.
Að sýningu lokinni, kl. 16:00, er boðið er upp á danstíma með dansaranum og dansahöfundinum Tinnu Grétarsdóttur, þar sem börnum (og forráðamönnum) er veitt innsýn i samtímadans með skemmtilegum leikjum og skapandi verkefnum. Danstímann þarf að borga sérstaklega.
Miðaverð á sýninguna er 2.500 kr. Danstíminn kostar 1.000 kr en sé einnig keyptur miði á sýninguna er verðið 500 kr.
Miðapantanir eru hjá Grétu Clough á handbendi@gmail.com Enginn posi verður á staðnum og því aðeins hægt að greiða með reiðufé.