Varað við Formspring

Í vikunni heimsóttu skólastjóri og deildarstjóri unglingastigs Árskóla á Sauðárkróki nemendur í 8. - 10. bekk og ræddu við þá og vöruðu við notkun á samskiptavefnum http://www.formspring.me/ Á vef þessum geta einstaklingar í skjóli nafnleyndar gert meiðandi athugasemdir og spurt spurninga sem margar hverjar virðast snúast um klám, kynlífslýsingar og einelti.

Víða hefur verið varað við þessum samskiptavef, meðal annars af starfsfólki í grunnskólum, fulltrúum Heimilis og skóla og forvarnarfulltrúa Marita. Einnig hefur verið fjallað um vefinn í fjölmiðlum og er hann talinn töluvert notaður af unglingum í efri bekkjum grunnskóla.

Skólastjórnendur hafa fengið ábendingar um að nemendur skólans hafi orðið fyrir áreiti á umræddum vef og þótti rétt að ræða við nemendur og í framhaldinu upplýsa foreldra um vefinn. Foreldrar voru beðnir um að vera vakandi og fylgjast með netnotkun barna sinna.

Fleiri fréttir