Varað við sauðfé í Fljótum
Vegfarendur á Norðurlandi vestra geta nú nokkuð óhikað farið að reikna með greiðri færð um landshlutann og hefur svo verið um nokkurt skeið. Hins vegar varar Vegagerðin sérstaklega við sauðfé á vegum í Fljótum í Skagafirði. Þar er enn mikill snjór og tekur hægt upp. Vegirnir eru gjarnan eina snjólausa svæðið og þar sem flestar girðingar eru á kafi leitar sauðfé upp á vegina. Á meðan eru vegfarendur beðnir um að fara sérstaklega varlega.
Það hefur eflaust glatt marga að sólin skyldi skína í morgun um það leyti sem flestir voru að fara til skóla og vinnu. Í dag hefur verið skýjað eða léttskýjað á Norðurland vestra og jafnvel farnar að sjást tveggja stafa hitatölur. Á Nautabúi í Skagafirði var 14 stiga hiti og heiðskírt eftir hádegi í dag.
Veðurstofan spáir hægri norðaustlægri eða breytilegri átt og lítilháttar vætu á Ströndum og Norðurlandi vestra. Sunnan 3-8 á morgun og smáskúrir. Hiti 6-12 stig.