Vefjagigtarfræðsla ef næg þátttaka fæst
feykir.is
Skagafjörður
09.03.2014
kl. 20.44
Enn eru laus pláss á námskeið um orsakir og meðferðarúrræði við vefjagigt sem Guðrún Helga einkaþjálfari og Sigurveig Dögg sjúkraþjálfari halda á Sauðárkróki seinni partinn í mars, ef næg þátttaka fæst. Samskonar námskeið var haldið síðast liðið vor og mæltist vel fyrir.
Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Þreksports eða fésbókarsíðu Þreksports.