Vefmyndavélar við smábátahöfnina á Sauðárkróki
Í síðustu viku voru settar upp tvær nýjar vefmyndavélar við smábátahöfnina á Sauðárkróki með yfirsýn yfir höfnina. Nú er hægt að fylgjast með hvernig lífið er á bryggjunni eða hvernig bátunum reiðir af í höfninni.
Á vef Svf. Skagafjarðar segir að með þessari viðbót séu vefmyndavélar, sem hægt er að fylgjast með á heimasíðu sveitarfélagsins, orðnar sex talsins. Þær eru staðsettar á Faxatorgi og Kirkjutorgi á Sauðárkróki, á Þverárfjalli, á Reykjarhóli í Varmahlíð og tvær við smábátahöfnina.
Vefmyndavélar sveitarfélagsins má nálgast HÉR