Vegagerðin býður út vetrarþjónustu

Vegagerðin hefur boðið út í vetrarþjónustu í Skagafirði árin 2013 – 2016 í tvennu lagi. Annars vegar er um að ræða vegakafla á Sauðárkróksbraut, Siglufjarðarvegi og Hólavegi, alls 105 km. Hins vegar er um að ræða leiðirnar frá Blönduósi að Skagaströnd, Sauðárkróki, Steinsstöðum og Fremri-Kotum, alls 201 km vegakafla.

Útboðsgögn vegna beggja útboðanna verða seld hjá Vegagerðinni Borgarsíðu 8 á Sauðárkróki og Borgartúni 7 Reykjavík (móttaka) frá og með þriðjudeginum 21. maí 2013. Verð útboðsgagna er 2.000 kr. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 4. júní 2013 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.

Nánari upplýsingar um útboðin er að finna á vef Vegagerðarinnar.

Fleiri fréttir