Vegagerðin veitir fé til styrkvega í Húnaþingi vestra
Vegagerðin hefur samþykkt að veita 1.800.000 krónum til styrkvega í Húnaþingi vestra á árinu 2017 og var bréf þess efnis kynnt á fundi landbúnaðarráðs sveitarfélagsins þann 19. júlí sl. eins og kemur fram í fundargerð þess. Skv. vegalögum nr. 80/2007 er heimilt að ákveða fjárveitingu í vegáætlun til að styrkja tilteknar samgönguleiðir, svokallaða styrkvegi, sem ekki falla undir skilgreiningar vega skv. lögunum. Í fjárhagsáætlun sveitarfélagsins er gert ráð fyrir tveimur milljónum króna til þess verkefnis og er því samanlögð upphæð til verkefnisins 3,8 milljónir króna.
Lanbúnaðarráð samþykkti svohljóðandi skiptingu fjárins:
a) Til afréttarvegar á Víðidalstunguheiði kr. 2.000.000
b) Til afréttavega í Miðfirði kr. 1.200.000
c) Til afréttavega í Hrútafirði kr. 200.000
d) Til vegar yfir Brandagilsháls kr. 200.000
e) Til vegar upp á Vatnsnesfjall kr. 200.000
Viðkomandi fjallskilastjórnum er falið að sjá um framkvæmdir á afréttarvegum hver á sínu svæði að öðru leyti en því að sveitarstjóra er falið að fá verktaka til vinnu við viðhald vegar yfir Brandagilsháls og vegar upp á Vatnsnesfjall.