Vegleg gjöf frá níu ára góðgjörðarmanni

Hákon Snorri ásamt Guðrúnu H. Guðmundsdóttur, Þorbjörgu Harðardóttur og Herdísi Klausen, sem allar eru hjúkrafræðingar við Heilbrigðisstofnunina. Mynd: KSE
Hákon Snorri ásamt Guðrúnu H. Guðmundsdóttur, Þorbjörgu Harðardóttur og Herdísi Klausen, sem allar eru hjúkrafræðingar við Heilbrigðisstofnunina. Mynd: KSE

Níu ára strákur á Sauðárkróki, Hákon Snorri Rúnarsson, tók sig til á dögunum og safnaði fyrir tíu útvarpstækjum sem hann færði Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki nú í vikunni. Hákon Snorri hefur alltaf haft áhuga á að láta gott af sér leiða og gleðja aðra.

„Ég fór að safna af því pabbi var á sjúkrahúsinu og það voru ekki til nein góð útvörp, hann prófaði þrjú og þau voru biluð,“ sagði Hákon Snorri aðspurður um hvernig hugmyndin hefði kviknað. „Ég fékk dót hjá ömmu minni, frænku minni og mömmu og hélt tombólu í anddyrinu í Skaffó á Bændadögum,“ segir Hákon Snorri, sem seldi hundrað hluti á tombólunni og fékk frábærar viðtökur.

Hann safnaði alls rúmum tuttugu þúsund krónum, auk frjálsra framlaga og fékk tíu útvörp í Elko, að verðmæti um 48 þúsund krónur, fyrir peninginn, en verslunin veitti honum veglegan afslátt. Því er nú hægt að setja eitt útvarp á hverja stofu sjúkradeildar. Auk þess gaf Hákon Snorri fimm þúsund krónur sem bárust eftir að tombólunni lauk í tækjakaupasjóð Sjúkrahússins.

Hákon Snorri vill nota tækifærið og þakka öllum sem lögðu honum lið við verkefnið en undirtektir voru langt fram úr hans vonum.

Fleiri fréttir