Veiði fer vel af stað í Miðfjarðará
feykir.is
Vestur-Húnavatnssýsla
19.06.2017
kl. 09.43
Laxveiði er nú hafin í Miðfjarðará og lofar byrjunin góðu. Fyrsta daginn, þann 15. júní, veiddust 44 laxar sem er með því besta sem veiðst hefur á opnunardegi í ánni. Morgunvaktin skilaði 23 löxum og 21 lax veiddist á síðdegisvaktinni. Flestir voru laxarnir, sem veiddust á öllum svæðum, í stærri kantinum, vænir tveggja ára laxar um 85-93 sentímetrar að lengd. Mest veiddist á hitch.
Miðfjarðará var aflahæst húnvetnsku laxveiðiánna síðastliðin tvö ár. Alls veiddust 4.338 laxar á tíu stangir úr ánni í fyrra og 6.028 laxar sumarið 2015 sem var veiðimet.