Vel fylgst með jarðsiginu

Viðvarandi jarðsig hefur lengi verið vandamál á Siglufjarðarvegi. Er um að ræða sex kílómetra kafla frá Heljartröð að Mánárskriðum sem erfiðlega hefur gengið að ráða bót á þar sem viðgerðir duga stutt á þessu svæði.
Að sögn G. Péturs Matthíassonar, upplýsingafulltrúa Vegaferðarinnar, er ástandið í jarðsiginu þó ekkert verra núna en gengur og gerist. „Hreyfingar í jarðsiginu koma fyrirvaralaust og erfitt að spá fyrir hvenær slíkt gerist,“ segir hann.
„Það er viðvarandi hreyfing á hlíðinni og í raun lítið hægt að gera. Þó er verið að skoða möguleika á uppsetningu iðvörunarbúnaðar sem sendi merki til stjórnstöðvar þegar hreyfingar eiga sér stað. Við fylgjumst vel með ástandinu þarna,“ sagði G. Pétur í samtali við Feyki í dag.