Vel heppnað skemmtikvöld

Árlegt skemmtikvöld Starfsbrautar FNV var haldið á Sal skólans miðvikudaginn 13. apríl kl. 20:00. Nemandi starfsbrautar, Guðjón Ólafur Einarsson bauð gesti velkomna og kynnti dagskrá kvöldsins en hún einkenndist af tón – og myndlist nemenda og kennara í FNV. Margir góðir tónlistamenn er í röðum nemenda í FNV og mjög öflugt tónlistarlíf er meðal þeirra m.a starfrækja þau tónlistarklúbb við skólann. Nokkrir nemendur úr hópnum komu fram og gerðu kvöldið ánægjulegt.

Nemendurnir þau Reynir Snær Magnússon, Sara Rut Fannarsdóttir, Bergþór Pálmason og Guðlaugur Ómar Guðmundsson fluttu nokkur falleg lög og sum laganna voru frumsamin af þeim. Kóngurinn Elvis Presley lét sjá sig, í sönganda, en það var Guðlaugur Ómar sem skapaði þessa upplifun fyrir áhorfendur – frábært hjá honum.

Kammerkór FNV er skipaður nokkrum kennurum við skólann undir góðri stjórn Erics Fissers, kórinn var stofnaður í vetur og hefur lítið komið fram opinberlega, ennþá. Þau sungu nokkur lög á hinum ýmsu tungumálum m.a. á sænsku, flæmsku, færeysku og frönsku. Sannarlega gaman að hlusta á þennan upprennilega kór skólans.

Nemendur á starfsbraut taka þátt í stuttmyndakeppni sem allar starfsbrautir á landinu keppast um annað hvert ár. Keppnin er haldin fimmtudaginn 14. apríl í Borgarholtsskóla og von er á mörgum nemendum allstaðar að af landinu. Nemendur á starfsbraut FNV sýndu sitt framlag til keppninnar á skemmtikvöldinu, en myndin er stutt fræðslumynd um fyrstu hjálp – hvernig á að bregðast við ef stendur í fóki. Nemendur unnu myndina sjálfir og ætla að koma myndinni í sölu með vorinu og minna þannig almenning á nauðsyn þess að halda við skyndihjálparkunnáttu sinni við því fyrstu viðbrögð eru oft lífsbjörg. Ágúst Örn Valsson úr nemendafélagi FNV aðstoðaði við tæknimál og ljósabúnað á skemmtikvöldinu.

Góðar kaffiveitingar í voru að vanda og góð stemming meðal áhorfenda.

Við nemendur og kennarar á starfsbraut viljum þakka öllum kærlega fyrir komuna og nemendunum í tónlistarhópnum og Ágústi Erni fyrir góða aðstoð og velvilja. Kammerkórinn fær miklar og góðar þakkir fyrir sitt framlag – svona gott kvöld verður bara til þegar margir leggja hönd á plóginn.

fnv.is

Fleiri fréttir