Vel heppnuð bjórhátíð á Hólum

Bjórhátíðin á Hólum í Hjaltadal var haldinn í þriðja skiptið 1. júní síðastliðinn. Var vel mætt á hátíðina eða um hundrað manns. Allir framleiðendur bjórs á Íslandi mættu en þeir eru: Bruggsmiðjan Kaldi, Steðji, Vífilfell, Gæðingur, Ölgerðin / Borg Brugghús, Ölvisholt Brugghús og svo auðvitað Hólamenn með Bjórsetur Íslands - Brugghús.  Að þessu sinni var einnig einn innflytjandi með, Elgur ehf., að kynna þá bjóra sem hann flytur inn en þeir koma helst frá Belgíu og Þýskalandi.

Hátíðargestir fengu að smakka á tæplega 50 tegundum af bjór af hinum ýmsu gerðum.  Eins og í fyrra var boðið upp á þýskar grillpylsur og hægeldað rifið svínakjöt (e. pulled - pork) og að auki saltkringlur (bretzl) frá Bakarínu við Brúna á Akureyri  Keppt var í kútaralli þrátt fyrir ausandi rigningu og vann Ragnar Elías Ólafsson rallið og fékk hann kassa af eðalbjór í verðlaun frá Járn og Gler, en þeir flytja mikið inn af bjór frá Danmörku og Bandaríkjunum. Bjórskóli Ölgerðarinnar gaf vegleg verðlaun í happadrætti hátíðarinnar og var það Ragnar Freyr Olsen sem hreppti vinninginn, tvo miða á skólabekk hjá Bjórskólanum.

Að venju voru svo þrír bestu bjórar hátíðarinnar kosnir af hátíðargestum og urðu úrslitin þessi:

Vatnajökull frá Ölvisholti, en hann  er bruggaður úr ísjökum sem teknir eru úr Jökulsárlóni, kryddaður með blóðbergi og fæst einungis á veitingastöðum í nágrenni Vatnajökuls.

Arctic Berry Ale frá Vífilfellli - Viking Brugghús, bruggaður úr kræki- og bláberjum.

Tumi Humall IPA frá Gæðingi Brugghús, beiskur og vel humlaður bjór enda bruggaður af ást og álúð af Jóhanni bruggmeistara Gæðings.

Loks var besti básinn valinn af dómnefnd hátíðarinnar og hlaut Ölgerðin / Borg Brugghús þau verðlaun.

Heppnaðist hátíðin afar vel og fóru hátíðargestir með ánægjusvip frá Hólum.

/GBE

Hér fyrir neðan má sjá nokkrar stemningsmyndir frá hátíðinni sem Guðmundur Björn Eyþórsson sendi Feyki.

.

Fleiri fréttir