Vel heppnuð hátíðarhöld í kuldanum
Þrátt fyrir kuldann á 17. júní var þjóðhátíðardagurinn haldin hátíðlegur í Skagafirði. Dagskráin byrjaði með andlitsmálningu í anddyrinu á Skagfirðingabúð, en skrúðgangan hófst þar á bílastæðinu, þar sem gengið var eftir Skagfirðingabraut í átt að íþróttaleikvanginum þar sem hátíðardagskráin fór fram.
Á íþróttaleikvanginum flutti Ásta Björg Pálmadóttir, Sveitarstjóri ávarp og Guðbrandur Ægir Ásbjörnsson flutti lagið Ísland ásamt Sönghóp unglingastigs Árskóla undir stjórn Írisar Baldvinsdóttur. Lagið er eftir Guðbrand og er úr leikritinu Draumalönd. Fjallkonan að þessu sinni var Sigurveig Dögg Þormóðsdóttir og flutti hún ljóðið Sumarkveðja eftir Pál Ólafsson. Kynnir á hátíðardagskránni var Erna Nielsen.
Magni Ásgeirsson mætti síðan með gítarinn og flutti nokkur lög ásamt Sönghóp unglingastigs Árskóla. Eftir hátíðardagskránna gátu gestir tekið þátt í skátatívolí og börnum var boðið að láta teyma undir sér á hestbaki en sú dagskrá fór fram á Flæðunum.
Maddömukot var opið í tilefni að deginum og nokkrir veitingastaðir í Skagafirði buðu gestum upp á dýrindis þjóðhátíðarkaffi, þar sem gestir gátu bragðað brot af því besta.
Jónsmessuhátíðin á Hofsósi var með dagskrá á þjóðhátíðardaginn en þar má nefna gönguferð fram í Þórðarhöfða, kvöldvöku og skemmtun í Höfðaborg.
Við viljum þakka öllum þeim sem tóku þátt í þjóðhátíðardagskránni hjartanlega fyrir þeirra framlag og gestum kærlega fyrir komuna.