Vel sóttur framboðsfundur Guðna Th.

Guðni Th. Jóhannesson á Mælifelli á Sauðárkróki í dag. Mynd/BG.
Guðni Th. Jóhannesson á Mælifelli á Sauðárkróki í dag. Mynd/BG.

Margt var um manninn á Mælifelli, Sauðárkróki í dag en þar hélt Guðni Th. Jóhannesson, forsetaframbjóðandi fund. Á fundinum reifaði Guðni hugmyndir sínar um forsetaembættið, fór með gamansögur og svaraði spurningum úr sal.

Þá kynnti hann eiginkonu sína, Elizu Reid sem svo steig í pontu og sagði frá fyrstu kynnum þeirra hjóna. Guðni heldur áfram för sinni í dag en hann heldur fund í Félagsheimilinu á Blönduósi kl. 17:00 í dag og í safnaðarheimilinu á Hvammstanga kl. 20:00.  

Fleiri fréttir