Vel sóttur upplýsingafundur vegna móttöku flóttamanna á Hvammstanga

Sveitarstjórn Húnaþings vestra samþykkti á fundi sínum þann 13. desember sl. að taka á móti 25 flóttamönnum frá Sýrlandi sem dvalist hafa í flóttamannabúðum í Líbanon sl. 4 – 5 ár. Af því tilefni var haldinn upplýsingafundur í Félagsheimilinu á Hvammstanga í gær þar sem um 140 manns mættu. Flóttafólkið er væntanlegt til landsins í apríl/maí.
Fundurinn hófst á kynningu Guðnýjar Hrundar Karlsdóttur sveitarstjóra, eins og fram kemur á heimasíðu Húnaþings vestra. Næst fjallaði Linda Rós Alfreðsdóttir, sérfræðingur frá félagsmálaráðuneytinu, um verkefnið almennt og reynslu sl. 10 ára. Þá sagði Linda Dröfn Gunnarsdóttir, verkefnastjóri vegna móttöku flóttafólks á Vestfjörðum, frá sinni reynslu og Nína Helgadóttir, verkefnastjóri flóttamannamála hjá Rauða krossinum, sagði frá hlutverki Rauða krossins. Að lokum deildi Hussain Almamou, flóttamaður frá Sýrlandi, reynslu sinni en hann kom til Akureyrar árið 2016.
Eftir að framsögum lauk var opnað fyrir spurningar úr sal og segir á Húnaþing.is að góðar spurningar og ábendingar hafi komið fram sem eiga eftir að nýtast við undirbúning verkefnisins.