Velferðasjóður til að létta efnaminni foreldrum þátttöku barna í íþróttastarfi

UMSS og Tindastóll hyggjast stofna velferðarsjóð íþróttahreyfingarinnar í Skagafirði í þeim tilgangi að létta efnaminni foreldrum þátttöku barna sinna í íþróttastarfi.

Félögin hafa óskað eftir að Sveitarfélagið Skagafjörður taki þátt í þessi verkefni með fjárframlagi, helming á móti framlagi íþróttafélaganna. Hefur erindi þess efnis nú þegar verið sent til félags- og tómstundanefndar sem tók vel í erindið. Ekki er þó gert ráð fyrir þessu í fjárhagsáætlun 2011. Var málinu því vísað til Byggðaráðs.

Fleiri fréttir