Vélsleði brann til kaldra kola

Um síðustu helgi fór hópur vélsleðamanna úr björgunarsveitinni Skagfirðingasveit upp í Vesturfjöll Skagafjarðar til æfingar en heimferðin fór öðruvísi en áætlað hafði verið. Einhverra hluta vegna lak bensín úr tanki sleðans og eldur kviknar með þeim afleiðingum að sleðinn fuðraði upp.

Magnús Hinriksson á Sauðárkróki var ökumaður sleðans og segir hann frá atvikinu í meðfylgjandi myndbandi.

http://www.youtube.com/watch?v=9Uv0n9AHiCQ&feature=youtu.be

Fleiri fréttir