Velta Kaupfélags Skagfirðinga eykst um 5 milljarða milli ára

Bjarni Maronsson, stjórnarformaður Kaupfélags Skagfirðinga, tók til máls á fundinum.
Bjarni Maronsson, stjórnarformaður Kaupfélags Skagfirðinga, tók til máls á fundinum.

Aðalfundur Kaupfélags Skagfirðinga var haldinn í Selinu á Sauðárkróki þann 16. apríl síðastliðinn. Fram kom að velta félagsins hafi verið um 32,2 milljarðar króna á síðasta ári og hefði aukist um 5 milljarða milli ára. Samkvæmt upplýsingum frá KS komu Steinullarverksmiðjan á Sauðárkróki ásamt Kjötbankanum í Hafnarfirði og Sláturhúsinu á Hellu ný inn í samstæðuuppgjör félagsins að þessu sinni.  

Hagnaður samstæðunnar var rúmur 1,8 milljarður á móti 2,1 milljörðum árið 2014. Veltufé frá rekstri samstæðunnar nam 3,3 milljörðum á móti 3,5 milljörðum árið á undan. Eigið fé var 25,4 milljarðar um síðustu áramót samanborið við 23,7 milljarða árið á undan. 

Í inngangsorðum Þórólfs Gíslasonar kaupfélagsstjóra, í ársskýrslu kaupfélagsins, kemur fram að stærstu verkefni og fjárfestingarnar hjá samstæðunni hafi verið breytingar á landvinnslu FISK-Seafood á Sauðárkróki, fjárfestingar hjá kjötafurðastöð og mjólkursamlagi ásamt kaupum á hlutafé í Steinull hf. Hann segir að markaðir fyrir sjávarafurðir hafi verið nokkuð góðir á árinu, ef frá er talin sala á þurrkuðum sjávarafurðum til Nigeríu. Vegna verðfalls á hráolíu féll kaupmáttur í Nigeríu og skortur varð á gjaldeyri. Þá segir hann markaði fyrir kjöt og kjötafurðir erlendis vægast sagt hafa verið mjög erfiða á árinu 2015. Í raun hafi markaður fyrir gærur hrunið og óseldar birgðir hrannast upp. Það sem öðru fremur hafði áhrif var að Kína tók upp strangt eftirlit með innflutningi og Íslendingar gerðust aðilar að viðskiptaþvingunum gagnvart Rússlandi. Hann segir vonir standa til að fríverslunarsamningur milli Kína og Íslands verði virkur fyrir árslok.  

Framleiðsla Mjólku/Vogabæjar flytur til Sauðárkróks

Tæplega 900 manns unnu hjá Kaupfélagssamstæðunni á síðasta ári og námu launagreiðslur félagsins um 7 milljörðum króna. Fram kom á aðalfundinum að stærstu verkefnin framundan hjá samstæðunni væru kaup á nýjum ísfisktogara sem er væntanlegur í upphafi næsta árs og uppbygging landvinnslu hjá Fisk Seafood ásamt undirbúningi fyrir mjólkurpróteinframleiðslu og flutningi á framleiðslu Mjólku/Vogabæjar til Sauðárkróks. Samkvæmt upplýsingum frá KS er ekki ljóst nákvæmlega hvenær flutningurinn á framleiðslu Mjólku/Vogabæjar verður en stefnt er að honum í byrjun sumars.

Nánar er fjallað um fundinn í Feyki vikunnar. 

Fleiri fréttir