Verða nýju hálaunastörfin í sjávarbyggðunum?

Sjávarútvegsfundur Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga, var haldinn á Hilton Reykjavík Nordica hótel miðvikudaginn 2. október. Meðal efnis á dagskrá fundarins var erindi Vilhjálms Egilssonar rektors Háskólans á Bifröst sem nefndist „Á fiskvinnslan að geta átt kvóta?“

Hann greinir m.a. frá þeim ástæðum og rökum sem Tvíhöfðanefndin svokallaða hafði fyrir tillögu sinni um fiskvinnslukvótann sem var ein veigamesta tillagan. Ekki náðist sátt um tillöguna á sínum tíma en Vilhjálmur velti fyrir sér hvernig framþróun í fiskvinnslunni hefði orðið ef tillagan hefði verið samþykkt.

Að hans mati hefði þróunin hefði orðið á forsendum fiskvinnslunnar frekar en veiðanna sem hefði leitt til hægari þróunar í sjófrystingu en fleiri minni fiskvinnslur hefðu orðið samkeppnishæfari. Meiri stöðugleiki hefði orðið í sjávarbyggðum og tekjur í vinnslunni meiri, en að sama skapi tekjur útgerðar og sjómanna lægri. Þannig hefði reksturinn orðið enn markaðsdrifnari, þar sem aflamarkskerfið gefur færi á að skipuleggja sjávarútveginn á forsendum markaðarins og skapa sem mest verðmæti.

Í dag hefur vinnslan í landi náð sér á strik og áhersla lögð á alla verðmætakeðjuna. Ferskur fiskur er ráðandi í þróuninni og sjófrysting er ekki lengur með sama forskot. Nýjar greinar eru að koma inn í líftækni, heilsutengdum vörum og lækningavörum sem geta tvöfaldað verðmæti þorsksins. Í kjölfarið velti Vilhjálmur upp þeirri spurningu hvort að nýju hálaunastörfin muni verða til í sjávarbyggðunum.  Að lokum nefndi hann nokkur dæmi sem hann kaus að nefna stríð morgundagsins, en það er að skilgreina hvað það er og heyja rétta stríðið. Ekki eyða orkunni í stríð fortíðarinnar, heldur kanna hvar verður hægt að ná árangri, hvernig sjávarútvegur verður eftir 10-20 ár og hvaða hlut sjávarbyggðirnar munu vilja eiga í þeim sjávarútvegi.

Viðbrögð við máli Vilhjálms veittu Guðný Sverrisdóttir, sveitarstjóri á Grenivík, Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir oddviti á Tálknafirði og Gyða Steinsdóttir, bæjarstjóri í Stykkishólmi.

Fleiri fréttir