Verðandi endurnýtingarmiðstöð fær styrk úr Samfélagssjóði Landsbankans

Eigendur Verðanda endurnýtingarmiðstöðvar, Solveig Pétursdóttir og Þuríður Helga Jónasdóttir. Mynd:Landsbankinn.is
Eigendur Verðanda endurnýtingarmiðstöðvar, Solveig Pétursdóttir og Þuríður Helga Jónasdóttir. Mynd:Landsbankinn.is

Samfélagssjóður Landsbankans úthlutaði nýlega samfélagsstyrkjum að upphæð 15 milljónum króna. Samfélagsstyrkjum Landsbankans er ætlað að styðja mannúðar- og líknarmál, menntamál, rannsóknir og vísindi, forvarna- og æskulýðsstarf, umhverfismál og verkefni á sviði menningar og lista. Rúmlega 500 umsóknir bárust sjóðnum að þessu sinni. 

Að þessu sinni hlutu alls 34 verkefni styrk og eru verkefnin sem styrkt voru afar fjölbreytt og gagnast fólki á öllum aldri, víða um land. Þrjú verkefni hlutu styrk að fjárhæð 1 milljón króna, 17 verkefni hlutu 500.000 króna styrk og 14 verkefni fengu 250.000 króna styrk.

Eitt verkefni á Norðurlandi vestra hlaut styrk úr sjóðnum, Verðandi endurnýtingarmiðstöð á Hofsósi sem fékk styrk til að halda námskeið fyrir íbúa í moltugerð, smíði moltukassa og að endurnýta efni til að sauma innkaupapoka.

Sjá nánar hér.

 

Fleiri fréttir