Verður forræði Sparisjóðsins áfram í heimabyggð?
Þar sem stofnfjárhlutir Arion banka hf. í AFLi-sparisjóði og Sparisjóði Ólafsfjarðar eru nú til sölumeðferðar þar sem boðin eru til sölu 94,45% stofnfjár í AFLi og 99,99% í Sparisjóði Ólafsfjarðar má búast við nokkrum breytingum í kjölfarið.
Ekki er víst að breytingin muni koma við viðskiptavini né starfsemi Sparisjóðsins á Króknum nema hvað nýr aðili eignast hlut Arion í Sparisjóðnum en ekki liggja neinar upplýsingar um áhuga annarra fjármálastofnana á lausu á því að eignast hlutina.
Það er ljóst að aðilar verða að vera stórir, eða samvinna nokkurra í einum hóp til að hafa bolmagn í þessi kaup.Ólíklegt er að hægt sé að kaupa Skagafjörð (fyrrum Sparisjóð Skagafjarðar) út, þar sem sameining hefur þegar farið fram með löglegum hætti.
Þó væri forvitnilegt að fylgjast með hvort heimamenn sjái ástæðu til að fylkja sér að baki Sparisjóðnum til að fá forræði áfram í heimabyggð þar sem það er í stefnuskrá Sparisjóðsins að standa vörð um menningu listir og íþróttir í heimabyggð. Stofnfjáreigendur Sparisjóðsins eru á annað hundrað, flestir í Skagafirði.
Sparisjóðurinn hefur verið rekinn með hagnaði af reglulegri starfsemi undanfarin ár en opinberar aðgerðir til hjálpar skuldugum heimilum og fyrirtækjum auk leiðréttinga á erlendum lánum hafa leitt til mikilla varúðar færslna á afskriftarreikning.