Verndi þig englar

Sumartónleikum í Hóladómkirkju fer að ljúka og verða næst síðustu tónleikarnir næsta sunnudag 21. ágúst kl. 14:00. Á tónleikunum munu Gerður Bolladóttir sópran og Victoria Tarevskaia sellóleikari flytja íslensk þjóðlög.

Lögin eru frá ýmsum tímum, bæði veraldleg og trúarleg, sem verðaflutt með rödd og strengjum. Flutt verða lög sem öllum eru kunn og eru útsett af Ferdinand Rauter en einnig þjóðlög sem Hildigunni Rúnarsdóttur hefur nýlega útsett og hafa sjaldan heyrst. Ennfremur verður fluttur ljóðaflokkurinn ,,Lysting er sæt að söng''.

Ljóðin eru tekin upp úr fornum handritum en Snorri Sigfús Birgisson hefur útsett þau sérstaklega fyrir sópran og selló. Tónleikarnir eru sérstaklega tileinkaðir Katrínu Kolka Jónsdóttur.

Ókeypis aðgangur.

Fleiri fréttir