Veruleg röskun á starfsemi HSN
Ótímabundið verkfall hjúkrunarfræðinga hefst 27. maí. Á svæði Heilbrigðisstofnunar Norðurlands verður veruleg röskun á starfsemi stofnunarinnar ef til verkfalls hjúkrunarfræðinga kemur. Þetta kemur fram á vefsíðum HSN á Blönduósi og Sauðárkróki.
Á heilsugæslu sinnir hjúkrunarfræðingur aðeins bráðatilfellum og því sem ekki má bíða, hjúkrunarmóttaka mun því skerðast verulega. Ungbarnaeftirlit og skólahjúkrun fellur niður, jafnframt fellur reyksíminn niður. Þá fellur niður öll aðkoma hjúkrunarfræðinga að verkefnum, s.s. endurnýjun lyfja, símatíma, krabbameinskoðun og teymisvinnu.
Starfsemi á göngu- og dagdeildum skerðist verulega. Val speglanir og hjúkrun á göngudeild sykursjúkra fellur niður. Nauðsynlegar lyfjagjafir, s.s. remicade og sýklalyf, verða gefnar á göngudeildum.
Á hjúkrunar- og sjúkradeildum verður lágmarksmönnun. Ekki verður tekið inn í hvíldarinnlagnir og ekki verður hægt að taka við sjúklingum frá öðrum stofnunum (nema í undantekningartilfellum). En þó verði tekið við nýjum sjúklingum sem þurfa að leggjast inn.
Heimahjúkrun skerðist en unnið verður að því að skjólstæðingar í heimahjúkrun fái nauðsynlega þjónustu og að öryggi þeirra skerðist ekki. Loks segir að ekki verður hægt að taka inn nýja skjólstæðinga í heimahjúkrun á meðan verkfalli stendur (nema í undantekningartilfellum).