Vetrarhátíð í Skagafirði
Vetrarhátíð verður haldin dagana 21.–23. febrúar nk. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá og verður skíðasvæðið opið alla dagana og ýmsir viðburðir á svæðinu. Allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi, svigskíði, snjóbretti og gönguskíði. Hægt er að leigja allan skíða- og brettabúnað í fjallinu. „Það er alltaf líf og fjör hjá okkur. Músík mun hljóma alla dagana í fjallinu,“ segir í auglýsingu í Sjónhorninu.
Skíðasvæðið í Tindastóli er afar fjölskylduvænt skíðasvæði í fjallaparadísinni Tindastóli í Skagafirði. Fjallið býður upp á mikla möguleika bæði fyrir byrjendur og lengra komna. Kvöldverður, kvöldvaka og verðlaunaafhending fer svo fram á Mælifelli laugardaginn 22. febrúar.
Margskonar afþreying er í boði í Skagafirði; sundlaugar, gamli bærinn í Glaumbæ, gönguferðir, bíósýningar í Króksbíó og margt fleira. Veitingastaðurinn Ólafshús verður með sérstakt vetrarhátíðar tilboð alla dagana. Hægt er að fá snjósleða leigða hjá fyrir- tækinu Krókaleiðum ef veður og að- stæður leyfa. Pantanir í síma 895 4475.
Dagskrá vetrarhátíðar verður eftirfarandi:
Föstudagur 21. febrúar - Skíðasvæðið opið frá kl. 16–19
Laugardagur 22. febrúar - Skíðasvæðið opið frá kl. 9–19
09:30 Skoðun fyrir Risasvigmót.
10:30 START Risasvigmót. Peningaverðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin.
11:00 Þrautabraut í fjallinu. Krakkarnir safnast saman með hópstjórum.
12:00 Matur.
12:30 Ferðir á toppinn.
13:00 Þrautabrautir halda áfram.
13:00 Gönguskíðatrimm.
15:30 Skíðað út í buskann.
16:30 Vélsleðaspyrna.
20:00 Kvöldverður á Mælifelli.
Sunnudagur 23. febrúar - Skíðasvæðið opið frá kl. 11–16
11:00 Þrautakóngur.
12:00 Matur.
14:00 Brettaþraut.