„Við höfum gaman á Barokkhátíðinni“ – skemmtilegt myndband ungs hátíðargests

Um síðastliðna helgi var haldin Barokkhátíðin á Hólum í Hjaltadal. Aðsókn að viðburðum Barokkhátíðarinnar á Hólum hefur aldrei verið meiri, samkvæmt facebook síðu hátíðarinnar en yfir 60 manns komu t.d. á upphafstónleika Björgvinjar gítarkvartetts fimmtudagskvöldið 25. júní.

Meðfylgjandi er skemmtilegt myndband sem ungur fastagestur á hátíðinni gerði og gefur nýtt og ferskt sjónarhorn á hátíðina.

Þess má geta að nánar verður fjallað um hátíðina í Feyki fréttablaði í næstu viku.

https://youtu.be/Wtf_fJjLtLc

Fleiri fréttir