Viðtöl við liðsstjóra í KS-deildinni

Keppni í KS-deildinni hófst sl. miðvikudag með undankeppni um laus sæti í deildinni. Nýir knapar í deildinni verða kynntir í sérstökum þætti í Feyki. En nú hefur verið tekin upp sú nýbreytni að hafa liðakeppni og verða liðsstjórar hvers liðs kynntir hér á vefnum.

Um er að ræða viðtöl sem Svala Guðmundsdóttir hefur tekið við liðstjórana og eru einnig birt á isibless.is

Þórarinn Eymundsson er liðsstjóri Hrímnis liðsins í KS-Deildinni. Hann hefur valið Líney Maríu Hjálmarsdóttur með sér í lið og verður spennandi að fylgjast með þeim í vetur.

Hvernig líst þér á nýja fyrirkomulagið í deildinni, þ.e liðakeppni?

Mjög vel, ég hef alltaf haft gaman af liðakeppnum eins og Bikarmóti Norðurlands hér í denn. Þetta gerir keppnina enn meira spennandi og eflir samvinnu knapa.

Nú hefur þú valið Líney Maríu með þér í lið, hver var ástæðan fyrir því vali?

Fyrst og fremst af því hún er Lýtingur eins ég og hefur hangið á í keppni síðan að smalinn hætti. Þessi gamli skólafélagi fer líka þokkalega á hesti og er lagin við að vinna Eyfirðinga og Húnvetninga sem er ótvíræður kostur

Hvernig er hestakostur þinn fyrir deildina í vetur?

Hann er sterkur, ég mæti með reynslubolta eins og Takt frá Varmalæk, Brag frá Bjarnastöðum og Þey frá Prestsbæ. Svo er spurning hvort maður teflir fram einhverjum úr yngri deildinni.

Hvaða grein telur þú vera þína sterkustu í vetur?

Ef ég á að taka eina út þá er það T2 (slaktauma tölt) en 5-gangurinn og skeiðið leggjast sérstaklega vel í mig eins og venjulega.

Hver er besti hestur sem þú hefur komið á bak ?

Ég hef nú prófað svo marga góða hesta en vill helst ekki gera upp á milli. Besta hryssan er hinsvegar án vafa Þóra frá Prestsbæ.

Hvað færðu þér vanalega í morgunmat ?

Hafragrautur og lýsi síðastliðin 37 ár!

Fleiri fréttir