Vígsluleikir í dag
Það var vösk sveit sjálfboðaliða sem af hörku reif upp gólfdúkinn í Íþróttahúsinu á Sauðárkróki fyrir síðustu mánaðarmót en farið var í það verkefni að skipta um gólfefni.
Dúkurinn var kominn til ára sinna og var talinn valdur af ýmsum álagsmeiðslum íþróttafólks enda voru félögum sem spila í úrvalsdeild KKÍ sett þau skilyrði að parkett væri á gólfum á þeirra heimavöllum. Nú er svo komið að vígja á gólfið í dag með tveimur leikjum, annarsvegar klukkan 17:15 þar sem framtíðar meistaraflokkskonur Tindastóls og etja kappi við úrvalsdeildarlið Snæfells og svo klukkan 19:15 þar sem karlalið Tindastóls tekur á móti Snæfelli. Allur ágóði miðasölunnatr rennur í styrktarsjóð Magnúsar Jóhannessonar og má taka það fram að dómarar leiksins sem koma af suðvesturhorninu ætla að gefa vinnu sína. Allir í íþróttahúsið!
Meðfylgjandi myndir af upprifi dúksins tók Sveinn Brynjar Pálmason.
.