Víkur á Skaga í fyrsta sinn með veiturafmagn

Lokið var við að tengja bæinn Víkur á Skaga við veiturafmagn í gær en þar með hefur dísilrafstöðin á bænum lokið hlutverki sínu. Lagður var háspennujarðstrengur frá Höfnum í Skagabyggð að Hrauni í Skagafirði, tæpa 15 kílómetra leið, auk ljósleiðara.
Það er fyrst nú sem Víkur tengist veiturafmagni en að sögn Valgeirs Karlssonar ábúenda var ekki vilji fyrir því hjá Rarik að leggja strenginn, þá sex km, þegar Hraun var rafvæddur 1975.
Nú standa systkinin Finnur, Valgeir og Lilja á tímamótum en þau hafa selt jörðina eftir áratugalangan búskap. Segja þau að rafvæðingin og ekki síst tenging við ljósleiðarann vera forsenda þess að búskapur haldi áfram á jörðinni.
Verkið er samvinnuverkefni Rariks, Skagabyggðar og sveitarfélagsins Skagafjarðar, vegna ljósleiðaravæðingar í dreifbýli en auk Víka kemur strengurinn við á Ásbúðum og á Hrauni sem fær við þessa framkvæmd þriggja fasa tengingu.
Það voru Vinnuvélar Símonar ehf. sem sáu um lagningu strengjanna í jörð og segir Rúnar Símonarson framkvæmdastjóri að verkið hafi gengið vel þótt erfitt hafi verið á stundum vegna þess hversu mikið grjót var á leiðinni. Hann segir að vinnan hafi byrjað þann 30. nóvember og veðurblíðan verið þeim hliðholl þar sem jörð var þíð en lagningu strengjanna að Hrauni lauk í gær.
Myndir hér fyrir neðan eru fengnar hjá Rúnari Símonarsyni og sýna frá lagningu strengjanna að Víkum og Hrauni.