„Vildum halda flutningunum heima í héraði”
Flutningafyrirtækið Vörumiðlun, sem hefur höfuðstöðvar á Sauðárkróki, en teygir anga sína víða um land, fagnaði á dögunum 20 ára afmæli sínu. Magnús Svavarsson, sem stýrt hefur fyrirtækinu frá upphafi, stofnaði árið 1979 Vöruflutninga Magnúsar Svavarssonar sem samanstóðu í upphafi af honum sjálfum og einum flutningabíl.
Hafði fyrirtækið stækkað umtalsvert þegar Magnús, ásamt Kaupfélagi Skagfirðinga, stofnaði Vörumiðlun árið 1996. Vörumiðlun var upphaflega að 60% í eigu KS en 40% í eigu Magnúsar en er í dag alfarið í eigu KS. Magnús er enn við stjórnvölinn, enda kann hann því vel að hafa í nægu að snúast. „Ég sá að kaupfélagið yrði líklega eldra en ég og það væri betra að þeir héldu á þessum hlut. Þar sem við höfum keypt þessi flutningafyrirtæki hef ég lagt mikla áherslu á að hafa heimamenn. Við viljum skila til samfélagsins og hafa störf í heimabyggð og það eru allt menn úr heimahéraði sem vinna á þessum stöðum,“ segir Magnús m.a. í opnuviðtali í nýjasta tölublaði Feykis sem kom út í dag.