Vilja byggja 14 íbúðir á lóð gamla barnaskólans
Eitt kauptilboð barst í gamla barnaskólann við Freyjugötu á Sauðárkróki sem felst í að breyta húsnæðinu í íbúðir. Tilboðið barst frá Friðriki Jónssyni ehf. fyrir hönd óstofnaðs dótturfélags. Farið var yfir tilboðið á fundi Byggðarráðs Sveitarfélagsins Skagafjarðar í gær.
Í fundargerð segir að tilboðsgjafi fyrirhugar að breyta gamla barnaskólanum að meðtöldum leikfimisal í tíu íbúðir. Jafnframt er áhugi á að byggja við Freyjugötu fjórar íbúðir (tvö parhús). Samtals er því fyrirhugað að byggja á lóðinni 14 íbúðir.
Byggðarráð fól sveitarstjóra að koma á fundi með tilboðsgjafa.