Vilja snúa byggðaþróun til sóknar að nýju

„Sú þróun að áfram verði dregið úr þjónustu við landsmenn með samdrætti í starfsemi í byggðarkjörnum er að okkar mati mjög andstæð fyrri stefnu um að viðhalda og efla byggð í landinu.“ Þetta segir í ályktun aðalfundar hreyfingarinnar Landsbyggðin lifi, sem haldinn var á Kópaskeri þann 10. október síðastliðinn.

Aðrar ályktanir fundarins voru svohljóðandi:

„Forsætisráðherra hefur talað þannig að vinna þurfi gegn fækkun fólks á landsbyggðinni og koma í veg fyrir byggðaröskun.

Samt sem áður er það svo í raun að fækkað er einkum í opinberum störfum á landsbyggðinni og nú virðist einnig sem bankastarfssemi eigi eingöngu að vera í fjölmennustu byggðunum.

Samþjöppun í aflaheimildum sem eru kvótabundnar heldur einnig áfram bæði í aflamarkskerfi stærri skipa og krókaaflamarkskerfi smærri báta.

Samtökin Landsbyggðin lifi hvetja stjórnvöld og alþingismenn til þess að horfa með gagnrýnum augum á þessa þróun og hvernig megi efla og auðvelda nýliðum í sjávarútvegi og landbúnaði og snúa byggðaþróun til sóknar að nýju.“

 

Fleiri fréttir