Vill deiliskipuleggja Borgarvirki

Borgarvirki. Mynd: Húnaþing vestra.
Borgarvirki. Mynd: Húnaþing vestra.

Ásta Hermannsdóttir hefur fyrir hönd Minjastofnunar Íslands óskað eftir heimild til að deiliskipuleggja Borgarvirki í Vesturhópi og næsta nágrenni þess. Skipulaginu er ætlað að stuðla að verndun og varðveislu minja á svæðinu og gera þær aðgengilegri fyrir ferðamenn sem koma að virkinu.

Sveitarstjórn Húnaþings vestra heimilaði umsækjanda þann 10. desember 2015 að láta vinna deiliskipulag á sinn kostnað. Leitað var umsagna hjá Skipulagsstofnun og öðrum umsagnaraðilum og kynnt fyrir almenningi eins og lög gera ráð fyrir og bárust athugasemdir frá Umhverfisstofnun, Skipulagsstofnun, Vegagerðinni og Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra. Innsendum umsögnum var komið á framfæri við umsækjanda og skipulagsráðgjafa með tilmælum um að tekið yrði efnislega tillit til þeirra eins og kostur væri við gerð skipulagsins.

Ný tillaga að deiliskipulagi var send send inn þann 3. október sl. og gerði skipulags- og umhverfisráð ekki athugasemdir við deiliskipulagstillöguna á fundi sínum þann 6. október sl. og var hún og forsendur hennar kynntar fyrir íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum á opnu húsi í ráðhúsi Húnaþings vestra 27. þess mánaðar.

Samkvæmt fundargerð frá 1. desember hefur verið tekið tillit til þeirra ábendinga sem bárust eftir því sem við á. Nokkrar minniháttar breytingar voru gerðar á tillögunni og er gerð grein fyrir þeim breytingum í greinargerð skipulagstillögunnar.

Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki að deiliskipulagstillagan verði auglýst og jafnframt verði skipulagsfulltrúa falin málsmeðferð vegna auglýsingarinnar.

Fleiri fréttir