Vill Hafró á Krókinn
Sveitarstjórn Skagafjarðar samþykkti á fundi sínum í síðustu viku tillögu frá Sigurjóni Þórðarsyni, Frjálslynda flokknum, þess efnis að lagt verði til við landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, að Hafrannsóknarstofnun verði að hluta til eða öllu leyti flutt til Sauðárkróks.
Í rökstuðningi Sigurjóns segir; Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar kemur fram að velta eigi við hverjum steini í þeirri viðleitni að tryggja að sjávarútvegurinn sé hagkvæmur og skapi störf og verðmæti. Í því augnamiði hafa stjórnvöld lagt í vinnu við að fara yfir hvernig fyrirkomulag veiða skuli háttað til að tryggja þjóðinni arð og hagkvæma langtíma nýtingu fiskistofna og almenna sátt í atvinnugreininni. Mikilvægt er sömuleiðis að fara rækilega í gegnum og endurskoða fyrirkomulag hafrannsókna.
Ljóst er að árangur af umdeildri veiðiráðgjöf Hafró er einfaldlega hræðilegur en
kvótakerfið var sett á tímabundið á níunda áratug síðustu aldar til reynslu með því fororði að auka ætti þorskveiðar úr 300 þúsund tonnum í 500 þúsund tonn.
Í stað þess að útgefinn fiskveiðikvóti hafi aukist þá hefur hann minnkað og er einungis 160 þúsund tonn á yfirstandandi fiskveiðiári.
Sjávarútvegsráðherra, Jón Bjarnason hefur nú þegar brugðist við gagnrýni á fiskveiðiráðgjöfina með því að setja á fót nefnd til að fara ofan í saumana á umdeildri ráðgjöf Hafró. Skúli Skúlason rektor á Hólum var skipaður á haustmánuðum 2010 af ráðherra, til að fara fyrir stýrihópi sem ætlað var að fara með gagnrýnum og hlutlausum hætti í gegnum fiskveiðiráðgjöfina og aflareglu.
Svo undarlegt sem það er, þá kvað Hafrannsóknastofnun til þátttöku í nefndarstörfum um endurskoðunina á aflareglunni og veiðiráðgjöfinni, þá sérfræðinga stofnunarinnar sem koma beint að og eru ábyrgðarmenn á þeim verkum sem nefndinni er ætlað að endurskoða!
Þegar fyrirliggjandi er að verndunarstefna Hafrannsóknarstofnunar hefur
skilað minna en engum árangri í tæpa þrjá áratugi þá hlýtur að vera eðlileg
krafa samfélagsins að fyrirkomulag og skipan hafrannsókna verði endurskoðað frá grunni. Koma þarf áherslum stofnunarinnar frá því að vera í fiskatalningu og reiknisfiskifræðilegri ráðgjöf til þess að stunda grunnrannsóknir á vistfræðilegu sambandi lífvera hafsins.
Einn eðlilegur þáttur sem vert er að fara vandlega yfir eru þeir miklu kostir sem fylgja því að flytja Hafrannsóknarstofnun á Sauðárkrók. Gera má ráð fyrir að staðsetning stofnunarinnar á Sauðárkróki tengdi rannsóknir betur við grunnatvinnuveg þjóðarinnar. Staðsetning á Sauðárkróki gæfi kost á endurskipulagningu í í tengslum við þekkingarsetrið Verið og fiskifræðinga við Háskólann á Hólum. Mikilvægt er að undirbúa fyrirhugaðan flutning vandlega og í sem mestu samráði og sátt við starfsfólk þar sem horft verði til þess að starfsemin yrði flutt með markvissum hætti í nokkrum skrefum.