Viltu kynnast fiðluspili?
Í dag býður yngsti hópur strengjadeildar Tónlistarskóla Skagafjarðar öllum að koma í hóptíma með sér milli kl.17:00 og18:00 í Tónlistarskólanum á Sauðárkróki.
Að sögn Kristínar Höllu fiðlukennara munu nemendur byrja á því að spila á fiðlurnar og gefa gott innlit inn í kennslu í hóptímum. Að því loknu munu allir fá að taka þátt í tónlistarleikjum og dansi. Allir eru velkomnir, stórir sem smáir og tilvalið að kynna sér hvaða töfrum þessi hljóðfæri búa yfir.