Vinabæjarmót í Skagafirði

Dagana 15 og. 16 júní munu fulltrúar frá vinabæjum Sauðárkróks í Danmörku, Noregi, Svíþjóð og Finnlandi heimsækja Skagafjörð og taka þátt í vinarbæjarmóti. Umfjöllunarefni mótsins er Ungt fólk og atvinnuleysi og Samstarf opinberra aðila og einkageirans.

Það verða sveitastjórnarfulltrúar í Skagafirði sem munu taka á móti fulltrúunum, halda með þeim ráðstefnu þar sem ofangreind málefni verða rædd auk þess að heimsækja fyrirtæki og stofnanir í Skagafirði. Gert er ráð fyrir að erlendu gestirnir verði um fjörutíu.

Fleiri fréttir