Vinaliðaverkefnið í útrás

Vinaliðaverkefnið, sem starfrækt hefur verið í skagfirskum skólum á annað ár, er nú í útrás. Árskóli á Sauðárkróki er móðurskóli fyrir verkefnið og hafa þeir Gestur Sigurjónsson og Guðjón Jóhannsson haldið leikjanámskeið víðsvegar um landið í tengslum við það.

Hér er hægt að skoða myndskeið frá leikjanámskeiði í Þelamörk sem birtist á N4 og ber það bæði verkefninu og þeim félögum gott vitni, eins og frá er sagt á heimasíðu Árskóla. Hér má svo sjá umfjöllun Skessuhorns um Vinaliðaverkefnið.

Fleiri fréttir