Vinaverkefnið hlaut Foreldraverðlaun Heimilis og skóla
Vinaverkefnið sem er samstarfsverkefni leik-, grunn- og framhaldsskóla í Skagafirði, frístundadeildar, íþróttahreyfingarinnar og foreldra í Skagafirði var rétt í þessu að vinna til Foreldraverðlauna Heimilis og skóla. Með Foreldraverðlaunum Heimilis og skóla er vakin athygli á þeim mörgu verkefnum sem efla starf í leik,- grunn,- og framhaldsskólum landsins og styrkja jákvætt samstarf heimila, skóla og nærsamfélagsins.
Þrjú skagfirsk verkefni voru tilnefnd til verðlaunanna en auk Vinaverkefnisins var Leikskólinn Tröllaborg og Grunnskólinn Austan Vatna á Hólum einnig tilnefnd.