Vinavika á Hofsósi

Hefðbundið skólastarf var brotið upp hjá Grunnskólanum Austan Vatna í síðustu viku en í stað venjulegs skólastarfs voru dagarnir brotnir upp og lögð áhersla á hverskonar vináttu í "Vinaviku" skólans.

M.a. var farið í leynivinaleik, ortar smásögur og ljóð á ský, skrifað um fyrirmyndir í fótspor, sungin vinalög, farið í vinagöngu og boðið upp á vinakaffi og -vöfflur. Myndir frá Vinavikunni er hægt að sjá hér

Fleiri fréttir