Virkjunarframkvæmdir gætu hafist 2013
Landsvirkjun hefur um þó nokkurt skeið haft til skoðunar frekari virkjanir í Blöndu og vinnur Landsvirkjun nú að frumhönnun á þremur smávirkjunum í Blönduveitu sem nýta þá óvirkjað fall í veitulegu úr Blöndulóni niður í inntakslón virkjunarinnar sem heitir Gilsárlón. Þetta kom fram í svari Katrínar Júlíusdóttur iðnaðarráðherra við fyrirspurn Einars K. Guðfinnssonar alþingismanns.
Gert er ráð fyrir að uppsett afl verði 28 megavött og er áætlað að samanlögð orkugeta verði um 180 gígavattstundir á ári. Virkjað fall er um 64 metrar úr Blöndulóni í Gilsárlón, sem er inntakslón Blönduvirkjunar. Fyrirhugaðar virkjanir sem verið hafa til skoðunar eru þrjár: Sú efsta, Kolkuvirkjun, sem virkjar fallið úr Blöndulóni yfir í Þrístiklu og verður stöðvarhús hennar staðsett sunnan við Þrístiklu. Næsta er Fannlækjarvirkjun sem virkjar fallið frá Smalatjörn í Austara-Friðmundarvatn og verður stöðvarhúsið staðsett sunnan við vatnið. Sú þriðja er Gilsárvirkjun sem virkjar fallið frá Austara-Friðmundarvatni niður í Gilsárlón og verður stöðvarhúsið staðsett mitt á milli Gilsárlóns og Austara-Friðmundarvatns.
Á næsta ári áformar Landsvirkjun að halda áfram nauðsynlegum rannsóknum og verkfræðilegum undirbúningi auk vinnu við mat á umhverfisáhrifum. Það er mögulegt að hefja virkjunarframkvæmdir á seinni hluta árs 2013 og gangsetja þá virkjanirnar á seinni hluta árs 2016. Núverandi útfærsla á virkjunum í Blönduveitu er raðað í orkunýtingarflokk
Benti ráðherrann á að þessar virkjanaframkvæmdir væru taldar ákjósanlegar út frá nýtingarsjónarmiði og umhverfisáhrifin lítil. Það mætti sjá af því að einhugur var meðal allra sem um málið fjölluðu að skipa virkjuninni í svo kallaðan nýtingarflokk.
Þær virkjunarframkvæmdir í Skagafirði sem voru skoðaðar, voru Skatastaðavirkjanir B og C og Villinganesvirkjun og þeim var raðað í svo kallaðan biðflokk, en ekki í nýtingarflokk.
Benti Einar á þýðingu þess að ákvarðanir verði teknar sem fyrst. Það hefði í för með sér umtalsverð umsvif á svæðinu á meðan á virkjanaframkvæmdum stæði.
„Við sjáum af þessu að ef vel er haldið á spöðunum er hægt að hefja þarna framkvæmdir síðari hluta árs 2013, eftir u.þ.b. tvö ár. Þá er mjög mikilvægt að nýta tímann vel á næsta ári til að vinna að þeim undirbúningi sem hæstv. iðnaðarráðherra rakti, bæði að tæknilegum undirbúningi og eins undirbúningi sem lýtur að umhverfismatinu“, sagði Einar.