Vísindi og grautur
Á miðvikudaginn hefjast fyrirlestrarnir „Vísindi og grautur“ á vegum Háskólans á Hólum á nýju ári. Fyrirlesturinn hefst kl 11:15 og mun Ingibjörg Sigurðardóttir lektor við Ferðamáladeild Háskólans á Hólum fjalla um hestaferðaþjónustu; þróun fyrirtækja á atvinnugreinar.
Í fyrirlestrinum er fjallað um yfirstandandi rannsókn á hestaferðaþjónustu sem atvinnugrein á Íslandi. Rýnt er í framboðs- og eftirspurnarhliðar hestaferðaþjónustu og tengsl hennar við aðra hestatengda atvinnustarfsemi. Fjallað er um hvernig og hvers vegna fyrirtæki í hestaferðaþjónustu hafa þróast, hverjir viðskiptavinir þeirra eru og hvaða þættir hafa áhrif á ánægju viðskiptavina með veitta þjónustu. Einnig verður komið stuttlega inn á klasaþróun í hestamennsku á Norðurlandi vestra.
Á vorönn verður hægt að hlusta á fyrirlestrana í fyrirlestraröðinni, á Hólum í stofu 303 og í gegnum fjarfund í Háskóla Íslands í kjallaranum í Odda