Vonbrigði með fjárveitingar
Eins og áður hefur verið greint frá í Feyki sótti Svf. Skagafjörður um þátttöku í verkefninu brothættar byggðir vegna Hofsóss, en var ekki meðal þeirra byggðarlaga sem tekin voru inn að þessu sinni.
Í fundargerð atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar frá síðustu viku kemur fram að þegar grennslast var fyrir um röðun byggðarlaga út frá mælikvörðum Byggðastofnunar kom í ljós að Hofsós lenti í tíunda sæti af tólf byggðarlögum.
Á fundinum var eftirfarandi bókað: „Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd lýsir yfir vonbrigðum með naumt skammtaðar fjárveitingar sem veittar eru til verkefnisins Brothættar byggðir og óskar eftir að stjórn Byggðastofnunar beiti sér með Sveitarfélaginu Skagafirði í því að auknum fjármunum verði varið til þessa brýna verkefnis svo unnt verði að taka Hofsós og fleiri byggðarlög þar inn.
Stjórnvöldum og stofnuninni ber að leita allra úrræða til að vinna með heimamönnum að því að styrkja byggð á Hofsósi og öðrum byggðarlögum sem hafa átt undir högg að sækja á undanförnum árum. Umrædd afgreiðsla Byggðastofnunar er enn eitt dæmið um það hversu Norðurland vestra er sniðgengið í fjárveitingum hins opinbera.“
Á fundinum óskaði Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd jafnframt eftir að fulltrúi Byggðastofnunar mæti til fundar nefndarinnar og fól starfsmönnum að leita eftir fundartíma þar að lútandi.