Vorboðar á Reykjum í Miðfirði
„Sumum finnst lóan vera vorboði en hjá öðrum er það þegar lömb fæðast, eins og gerðist óvenju snemma á bænum Reykjum í Miðfirði,“ segir í frétt hjá Norðanátt.is en veturgömul ær kom ábúendum á þar á bæ skemmtilega á óvart gær þegar hún bar tveimur lömbum.
Gerður Ólafsdóttir segir í samtali við Norðanátt að hún hafi nú ekki átt von á þessu fyrr en í byrjun maí og þegar fréttamanni Norðanáttar bar að garði var ekki búið að gefa þeim nafn, en lömbin eru kölluð lambadrottning og lambakóngur.